Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Það gleður mitt litla hjarta...

31. desember 2008 klukkan 13:52
að horfa á "Silfurdrengina okkar"!

Kominn tími á bros fyrir hönd þjóðarinnar aftur, þó það þurfi að sækja efnið í fortíðina.

Áramótin

31. desember 2008 klukkan 00:00
Gemlingarnir mínir er gersamlega búnar að snúa sólarhringnum við. 
Það er allavega alveg klárt að þessi auka sekúnda sem bætt er við sólarhriginn á morgun til að rétta af klukkuna verður ekki til þess að dætur mínar missi af neinu!  Ónei!!!

Bloggleti!!!

29. desember 2008 klukkan 16:33
Voðalega eru allir latir að blogga yfir jólin!

Nema ég... Hér kemur jólafærslan mín...

Önnur jólin í röð finn ég ekki bragð af jólamatnum svo hægt sé að tala um.  Er svo stífluð af kvefi að piparkökurnar hans hérastubbs bakara hefðu runnið ofan í mig eins og sykrað hlaup. Já, því að þó að ég finni ekki bragð þá kemur það ekki í veg fyrir að ég borði. Nei!  Til þess er ég alltof góð við mig.
Ég er eins og alkarnir sem detta í það áður en þeir fara í meðferð. Er búin að ákveða að fara í átak eftir jól og þá skla njóta matarins fram að því! Með eða án bragðs!!!!

Já og á meðan ég man...Gleðileg jól!!!

25. desember 2008 klukkan 02:42

Jólapappír

23. desember 2008 klukkan 02:20
Í nóvember í fyrra var farin ein rosalegasta verslunarferði til US and A sem sögur fara af.  Enda gengið á dollarnum um 60 og við með vilyrði fyrir auka farangursplássi í vélinni.
Eitt af því sem er víst mjög hagkvæmt að versla í USA er jólapappír. Þetta sagði Helena mér og ég að sjálfsögðu fór að ráðum hennar og keypti jólapappír. 
Ég stillti mér upp fyrir framan jólapappírsrekkana í Target og sá fljótlega að úrvalið var of mikið til að vera að velja eitthvað sérstaklega svo ég bara fann
í skyndi, tvær tegundir sem mér fannst vera flottar og keypti þær og málið er dautt, eða næstum allavega.
Þegar komið var að ferðalokum kom í ljós að rúllurnar voru alltof stórar til að komast í töskurnar og því þurftu herlegheitin að vera í handfarangri.  Þegar heim var komið og líða tók að jólum var farið í að pakka inn öllum USA gjöfunum. Þá kemur í ljós að helv#/&$#= jólapappírinn er í þynnra lagi. Semsagt drasl. EN ég var búin að dröslast með þetta alla þessa leið og pappírinn skyldi notaður!!!!
Í stuttu máli eru jólin sem nú ganga í garð, önnur jólin með þennan blessaða jólpappír og ég er ekki búin með nema 2 af 4 rúllum þrátt fyrir að vera búin að pakka öllum pökkum (25-30 stk.) bæði jólin í pappírinn. 
Það kom nefnilega í ljós að það svo mikill pappír á hverri rúllu að það myndi duga til að dúkaleggja meðalstóra íbúð án nokkurra vandræða.
Hér er semsagt skýringin á því kæru vinir og ættingjar afhverju þið fáið alltaf eins pakka ár eftir ár eftir ár!

Verið þolinmóð!

Jólastúss

22. desember 2008 klukkan 19:43
Kláruðum öll jólakortin í gær.  Föndruð frá grunni og skrifuð í gær og send í morgun.  Ætti að sleppa á áfangastað fyrir jól en ef ekki þá er stimpillinn dagsettur fyrir jól og það er það sem gildir:)
Á svo bara eftir jólapakkann hans Matta eftir, veit samt hvað ég á að kaupa, á bara eftir að klára það.
Semsagt ekki svo slæmt!  Sé fram á að fá einhvern svefn á aðfaranótt aðfangadags.

Framtakssama dóttir mín...

22. desember 2008 klukkan 03:14
ákvað í dag að klippa á sér hárið af því það er svo erfitt og leiðinlegt að greiða það.  Og fyrst hún var byrjuð, afhverju ekki að snirta toppinn á systur sinni í leiðinni?
Flest börn klippa af sér einn lokk eða svo og í verstu tilfellunum er sá lokkur klipptur alveg inn við skalla svo það þarf að greiða yfir hann.  Helga aftur á móti tók nánast "Britney" á þetta.
Jebb!  Þegar faðir þeirra kom að þeim var komið efni í heilann kodda í baðkarið.

En svona fyrir ættingjana sem eru í sjokki þá er þessu viðbjargandi. Hún er hvergi með skallablett en hinsvegar held ég að það sé drengjakollur á þetta néstu vikur, jafnvel mánuði. Henni verður þó ekki meint af því. Ég var með drengjakoll fram að fermingu og það rættist ágætlega úr mér.  Ég er ekki varanlega sködduð á sálinni þó ég hafi nokkrum sinnum fengið bláann lykil þegar ég ætlaði í sund.
Hún er þó allavega það heppin að hún er með of þunnt hár til að geta verið með "brodda". Þau mistök leyfðu foreldrar mínir mér hinsvegar að gera æsku.

Ísbjarnaskreytingin í Kringlunni!!!

19. desember 2008 klukkan 14:50
Hvað er málið með að troða mörgæsum með kók-ísbjörnunum í Kringlunni.
Síðast þegar ég vissi þá lifðu ísbirnir á norðurpólnum en mörgæsir á suðurpólnum og frekar ólílegt að þessar tvær tegundir hittist og fái sér kók!!!!!

Jólasveinar ganga um gólf

16. desember 2008 klukkan 00:08
Hvaða vitleysingar komu með "nýja" útgáfu af laginu, eitthvað kjaftæði um að svona hefði það verið í gamladaga? Ekki mína gamla daga takk fyrir!!!!!

Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi, ekki gildan. Kannan þeirra stendur upp á stól en þeir kanna ekki uppá hól.

Þökk sé þessum vitleysingum þá syngur Helga Sonja núna  "upp á hól stendur mín kanna".

Að þessu sögðu vil ég leggja til að nýr texti við jólasveina 1 og 8 verði Jólasveinar 5 og 8. Ég er komin með nóg af því að útskýra fyrir barninu hvað jólasveinarnir eru margir og afhverju bara 1 og 8 hafi komð úr fjöllunum.

Adjust people!  Adjust!!!!!!!!!!

Ólafsfirska

13. desember 2008 klukkan 00:17
Þann örlagaríka dag er ég flutti í "Fjörðinn" kynntist ég einni furðulegustu mállísku sem ég hef heyrt (og athugið að ég er vestfirðingur og kalla ekki allt ömmu mína).  Jebb! Ólafsfirðingar eru nebbla ansi gjarnir á það að sleppa eignarfornöfnum.
Í fyrstu fannst mér þetta fáránlegt. Svo sætti ég mig við þetta. Seinna sá ég hag í þessu, þ.e. þetta skilst og maður er fljótari að tala.
Í dag áttaði ég mig hinsvegar á því að Ólafsfirðingar voru bara svona langt á undan sinni samtíð.
Ólafsfirðingar sáu einfaldlega MSN fyrir og þær styttingar sem viðhafast þar.
Hver hefði trúað því?
Bowwow

Lausn kreppunnar???

11. desember 2008 klukkan 15:45
Hvernig væri að fara bara út í annað þorskastríð?
Það virkaði síðast!!!!

300 þúsund ára saga

09. desember 2008 klukkan 23:58
myndlistar og þeir geta ekki fundið eina mynd til að hafa á forsíðunni!

Hvað bull er það???

Smá upprifjun

09. desember 2008 klukkan 00:56
Var að spjalla við bróðir minn og þá rifjaðist upp fyrir mér...

Eftir að ég "reif  kjaft" upp á  Múlakollu hér um árið lá ég á spítala í nokkra daga.  Eðli málsins samkvæmt þá leiddist mér og ég fór að  teikna.  Þeir sem muna eftir mér á þessum tíma muna ef til vill að ég var frekar óheppin (þetta Múlakolluslys var svosem ekkert eins og þruma úr heiðskýru).  Þessvegna ályktaði ég að ég hlyti að deyja daginn áður en ég fengi bílpróf (stærsti væntanlegi atburður lífsins þegar maður er 15) og tók ein teikningin mið af því. Ég semsagt teiknaði legsteininn minn og þar var dánardagur 28. nóv. 1995.

Það er svo skemmst frá því að segja að ein hjúkkan sá teikninguna og minnstu munaði að ég yrði lögð inn á geðdeild.

Kanski hefðu þeir betur gert þaðSmile

Skoðanakönnun Huffington post!

06. desember 2008 klukkan 15:46
Who's The World's Worst Banker?

Fred Goodwin, CEO of Royal Bank Of Scotland = 4.73%
Richard Fuld, CEO of Lehman Brothers = 11.30%
Árni M. Mathiesen, Finance Minister of Iceland = 35.11%
Alan Greenspan, former Chairman of the Federal Reserve = 38.93%
James Cayne, CEO of Bear Stearns = 4.54%
Chris Cox, head of the Securities and Exchange Commission = 2.65%
Hank Paulson, former CEO of Goldman Sachs and current Treasury Secretary = 10.78%
Alan Fishman, CEO of Washington Mutual = 3.69%
Vikram Pandit, CEO of Citigroup = 5.51%

Grei-ið Árni! Vona hans vegna að huffingtonpost.com sé lítið skoðuð síða sem setti aðsóknarmet þegar linkurinn birtist á eyjan.is.

Spegill, spegill herm þú mér!!!!

05. desember 2008 klukkan 22:45
Ef ég fæ enn eitt fucking forwardið með textanum ...."Forward this to see who visits your facebook most" þá dey ég.
Þetta er hégómi og ekkert annað!

Lýðræði?

05. desember 2008 klukkan 00:17
Gunnar Þróttari að leikstýra nýju kommúnistaleikriti????

Fyrr átti ég á dauða mínum von en að ég færi að vita í Ásþór Magnússon en hér kemur það...

"Í efnahagshruni og kreppu eins og nú er komin upp á Íslandi getur myndast hætta á að öfgaöfl nái undirtökum. Hitler komst þannig til valda í Þýzkalandi á sínum tíma. Nú komið í ljós að stjórnarhættir forráðamanna Opins Borgarafundar eiga meira skylt með aðferðafræði fasista en lýðræði".


þetta er nú bara vel skrifað hjá kallinum. Hvort það er svo eitthvað til í þessu á svo eftir að koma í ljós.

En ef þessi grein er í aðalatriðum rétt þá vona ég að þjóðin sjái í gegnum þetta.

Afmælispartý

01. desember 2008 klukkan 00:43
Hélt ekkert slíkt enda sjaldan ef nokkurntímann fundistafmælin mín sérlega merkileg.
Var samt boðin í partý þar sem klíkan úr Stjörnunni hittist.
Endaði sem snilldar afmælisfagnaður þar sem við enduðum allar á að sofa heima hjá Heiðu.
Var alveg sami fílingur í gangi og á okkar bestu dögum í Stjörnunni og hvað er betra en að fara í smá nostalgígju á 30 ára afmælisdaginn????