05. mars 2008 klukkan 01:38
Ælupestinni lauk kl. ca. 06:00. Við tók svefn sem entist til 12 á hádegi hjá okkur mæðgum að undanskyldum klukkutíma hjá mér sem fór í að skjótast í sjúkraþjálfun.
Helga var hinsvegar orðin hin sprækasta eftir lúrinn svo við tók dagskrá sem mestmegnis samanstóð af því að spila við mömmu þó að mér hafi tekist að troða inn einhverju teiknimyndakyns svona rétt á meðan ég svaraði tölvupóstum.
Eitt spilið sem við spiluðum var minnisspil, þetta með spjöldum á hvolfi og svo á maður að fletta og reyna að fá jöfnur. Hér kemur snillingurinn inn í myndina!
Þrátt fyrir að Helga sé nokkuð lunkin og hafi í alvöru og án hjálpar tekist að vinna mömmu sína nokkrum sinnu auk þess sem hún fékk hjálp við það nokkrum sinnum var daman ekki sátt. Jafntefli er ekki eitthvað sem hún sættir sig við og þá fór heilinn af stað. Hvernig gæti hún unnið mig "ALLTAF"?
Lausnin var einföld og kom tiltölulega fljótt.
Nýju leikreglurnar voru þær að Helga fékk alltaf að byrja, maður fær að gera aftur ef maður nær jöfnu og..... myndirnar á spjöldunum snéru upp.
Merkilegt samt hvað hún varð alltaf glöð þegar hún fann jöfnur og svo var eitthvað sem skelfdi mig við innilega tilhlökkun hennar yfir því að ég hafi ekki náð neinni jöfnu!
Þrátt fyrir að staðan hefði óneytanlega batnað henni í hag með þessum nýju reglum þá fór henni fljótt að leiðast það að mamma fékk aldrei að gera svo við fórum aftur í gömlu leikreglurnar.
Þá byrjaði hún að svindla!
1. Hún sá um að setja spjöldin niður á borðið og hún kíkti á hvert og eitt einasta þeirra áður en hún lagði það niður.
2. Ef hún náði ekki jöfnu þá lagði hún niður og gerði aftur.
3. Ef að ég náði jöfnu og átti að gera aftur þá hunsaði hún það algerlega ef það voru fá spjöld eftir í borðinu.
4. Ef ég leit undan þegar ég átti að gera þá gerði hún á meðan.
Snilldin við þetta er svo sú að ég var í forledraviðtali á leikskólanum í gær og þar sagði fóstran/leikskólakennarinn mér að hún væri með svo sterka RÉTTLÆTISKENND!!!!!!