Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Hisst og her

30. maí 2007 klukkan 09:37
Finnið staðreyndarvillu sem fram kom í íþróttafréttum áðan...

"Svo er stórleikur í knattspyrnunni á morgun, Ísland og Liechtenstein mætast á Laugardagsvelli!"

a) Leikurinn er ekki á morgun
b) Ísland er ekki að fara  að spila við Liechtenstein
C) Ísland - Liechtenstein getur ekki flokkast sem stórleikur

Annars var Unnur veik í gær og á mán. og fékk ég því 4urra daga helgi!  Litli vargurinn fór hinsvegar á kostum í veikindunum og var hin skemmtilegasta.  Við mæðgur höfum ekki átt svona stundir tvær síðan 17hundruð og súrkál. Áttaði mig allt í einu á því hvað hún er orðin stór!
Fórum í leik sem henni fanst ansi skemmtilegur, í honum fólst að hún tók húfu af dúkku, tók svo dúkkuna og húfuna og rétti mér hana, ég setti húfuna aftur á og rétti henni, hún hljóp í hinn endann á herberginu, settist niður og tók húfuna af aftur, stóð upp labbaði með bæði til mín aftur og rétti mér, ég setti húfuna á aftur og svona gekk þetta í allavega 15 skipti þar til ég gafst upp og fór að brjóta saman þvott.
Get ekki beðið eftir að fara í spurningakeppni vð hana, þ.e. hún spyr og ég þarf að svara.  Hef einhvernvegin á tilfinningunni "that she´ll outlast me"!

Matti kom heim frá Frankfurt í gær og gjafir til dætranna hittu í mark.  Helga fékk bleikt prinsessu-Disney litasett og Unnur "Little people". Er ekki viss um að Helga verði hamingjusamari á brúðkaupsdaginn en hún var í gær.

Vorum annars ofboðslega duglegar svona pabbalausar um helgina, vorum úti í 7 tíma á laugardag og 6 tíma á sunnudag, stelpurnar eru báðar með kross á bakinu eftir sundferðirnar og er stefnan að fara að kaupa sundskýlur á þær.
Helga er orðin góðu von með pabba sinn alltaf heima og sagði við mig á mánudaginn..."Mamma!", "já?" segi ég. "Pabbi minn er dáinn!" "Dáinn? Hættu þessu rugli, hann er ekkert dáinn!" segi ég, "Jú!  Hann kemur aldrei!"
Væntanlega langt þar til Matti fer til útlanda án okkar, það er víst lífshættulegtHlæjandi

Annað spakmæli frá Helgu...."Nei!  Pabbi er ekki í útlöndum, hann er í flugvélinni í Hveragerði!"

Bowwow

Ný ríkisstjórn

23. maí 2007 klukkan 09:27
Er bara nokkuð sátt!

Björn er reyndar ekkert í uppáhaldi hjá mér en ég held bara að Jóhannes í Bónus hafi gert það ómögulegt fyrir Geir að skipta honum út. 
Maður lætur ekki traðka á sér!  Það er bara svoleiðis!
Bara halda aftur af sér í stöðuveitingum Björn og málið er dautt.
Spennandi verður að sjá hvað Jóhanna gerir í félagsmálaráðuneytinu, nú fær hún tækifæri á að standa við stóru orðin.
Löngu komin tími á þessa sameiningu hjá landbúnaðarráðuneytinu, Einar Guðfinns á eftir að ráða vel við þá viðbót, hversu stór sem hún nú er.
Spennandi að sjá hvað Fjölnisformaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson gerir í Heilbrigðisráðuneytinu. 
Hvað ætli læknavinunum finnist um það?

Stjórnarmyndun

18. maí 2007 klukkan 11:31
Ég er ánægð með Geir!
Vil ekki framsókn!

Í blaklokahófi á föstudaginn sem fullt var af vinstrafólki hélt ég því fram að Steingrímur J. væri nákvæmlega sami pappírinn og allir hinir.  Hann myndi selja sálina fyrir ráðherrastól alveg eins og framsóknarmenn og Solla.
Fékk ansi dræmar undirtektir og jafnvel fullyrðingar um að svo væri sko alls ekki.
Ég greip að sjálfsögðu tækifærið og fékk það út að ef VG og D færu saman í stjórn myndi ég drekka frítt í næsta lokahófi.  Góður díll þar sem ég þurfti ekkert að borga ef þetta gerðist ekki.

Er ekki útséð með frítt fyllerí ennþá en Steingrímur er klárlega búinn að selja sálina, hann notar bara Ögmund Jónasson sem sölumann.

Það var hálf aumkunarvert að hlusta á Ögmund grátbiðja Sollu í "í bítið" í morgun en þó með þeim fyrirvara að ef B, VG og S næðu ekki saman þá væri næstbest fyrir þjóðina að fá VG og D í stjórn.

Grobaninn

16. maí 2007 klukkan 08:49
Annars var Groban alveg magnaður og loka lagið, sem var að sjálfsögðu "you rase me up" toppaði held ég allt sem ég hef á æfi minni upplifað. 
Fyrir utan fæðingu barna minna.....Held égGlottandi

Annars er lítið hægt að tala um tónleikana, svona "had to be there" moment!

Rigning

16. maí 2007 klukkan 08:47
Matti er í allan vetur og allt vor búin að tuða yfir rigningunni.  Svo slæmt er þetta að ég var alvarlega farin að hugsa um að koma kallinum á prozac. Hann hefur hinsvegar ekki sagt orð undanfarna daga enda kann hann ekki orðið að halda uppi samræðum sem ekki snúast um rigningu.

Þess vagna fanst mér að Josh Groban hafði í gær átt að tileinka Matta lagið "Remember when it rained" í gær.

Maður er gamall þegar ....

15. maí 2007 klukkan 08:32
..maður er spurður að því í partý hvort börnin manns séu í framhaldsskóla!
..maður mætir litla bróður á göngu leiðandi kærustuna!
..maður yfirgefur dansgólfið hvað eftir annað í góðu partýi til að fylgjast með kosningasjónvarpi!
..barnið segir við mann "Sindri er alltaf að reyna að kyssa mig í leikskólanum!"
..Ólafsfjörður er bara ekki svo óálitlegur búsetukostur!

Hornbrekka here I come!

Óvissa

14. maí 2007 klukkan 09:06
Ekki var útlitið bjart á tímabili á aðfaranótt sunnudags.  Geir skilar umboðinu og forsetinn lætur það til Ingibjargar. Var að hugsa um að flytja bara til Tyklands en þakkaði um leið guði fyrir að vera ekki með nein erlend lán.  Það er góð staða fyrir vinstristjórn.
Sofnaði svo sátt á sunnudagsmorguninn kl. 18:00.
Vaknaði á hádegi (enda stelpurnar hjá mömmu og pabba), skellti mér út í bíl og þorði ekki að kveikja á útvarpinu.  Fór í bakaríið og passaði mig á að líta ekkert nema á vöruúrvalið og afgreiðslukonuna, engar blaðaforsíður.  Vildi hafa einhvern stuðning ef allt hefði farið á versta veg eftir talningu utankjörstaðaratkvæða. Staulaðist heim til ma og pa og spurðist frétta (er ekki með tengt sjónvarp heima hjá mér).
Um 2 leitið fórum við mæðgur svo í göngutúr í góða veðrinu.  Gekk út með vagninn og dró djúpt andann.  Það var gott að vera Íslendingur í gær og verður það allavega næstu 4 árin. Gekk áfram og leit upp á sjálfstæðisfánan sem blakti við hún á fánastön foreldra minna og brosti.  Gekk svo af stað út í sólina.

Jæja! Þá er það ákveðið!

11. maí 2007 klukkan 12:24
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Sjálfstæðisflokksins!


Þetta er niðurstaðan úr "Hvað áttu að kjósa" prófi á b2.is  - Kemur á óvart ekki satt!!!
En hér er niðurstaðan;

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk:
56.25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 18.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 41%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Fátt sem kemur á óvart en ég mæli með prófinu!

http://b2.is/?sida=tengill&id=235346

Sannspáar!!!

10. maí 2007 klukkan 21:54

Eða þannig! 

Hvernig er þetta þarna í austurevrópu?  Fær fólk borgað fyrir að kjósa????
Öll 10 löndin sem fóru áfram eru austur-evrópsk.
En skítt með það!  Þá þarf maður ekki að horfa á keppnina á laugardaginn, nóg að hafa hana í bakgrunninum í partýinu.

Hápunktar undankeppninnar komu að mínu mati frá þulinum, honum "KastljósSimma".
Einstaklega húmorískur drengur!
Eftirmynnilegurst comment í mynnisröð (náttúrulega helmingurinn gleymdur núna en so what)

*   Colgatekrúttið frá Hvíta-Rússlandi
*   Er ekki eitthvað bogið við að vera ógurleg vampíra og heita DJ- BoBo?
*   Það gerist nú bara í Júróvisjón að manneskja kemur fram í 3 kjólum en enginn
     man eftir neinu nema nærbuxunum hennar!
*  Móðir mín ól mig upp í guðsótta og góðum siðum og því neita ég að kommenta á   
    þetta lag!
*  Tyrkir lögðust í vísindalegar rannsóknir til að tryggja sig upp úr undankeppninni og
    framleiddu söngvara sem lítur út, dansar og syngur eins og George Michael. (ég
    verð samt að mótmæla þessu kommenti því sá tyrkneski er örugglega svona 10
    cm minni en George Michael)
*  Ég ætla að misnota aðstöðu mína og segja fjölskyldunni minni að ég vil ekki fá galla
    eins og þeir Austurrísku eru í í afmælisgjöf!

Annars finnst mér á atriðunum sem við sáum í kvöld að þjóðirnar hafi smitast eilítið af Silvíu Nót og farið að bæta full mikið í sjóvíð.  Keppnin er einn skrípaleikur.  Gengur vonandi yfir í ár eða næsta ár og lögin fari að verða metnaðarfull aftur.  Ég geri ekki kröfur um að þau verði góð en ég vil þó að skrípaleikurinn hætti, ég fer ekki fram á meira.

Kv, Kristín Eurovisionspekúlant

Bowwow

Eurovision

10. maí 2007 klukkan 21:24
Jæja!  Best að tjá sig áður en úrslitin eru ljós!

Við mamma völdum 8 lög sem við vorum nokku sammála um að kæmust áfram.  Þetta mat byggist ekki á faglegu mati okkar og reyndar ekki heldur á tilfynningalegu mati á gæði laganna.  Nei!  Matið er meira byggt á tilfynningu og mati á staðsetningu þjóðanna í Evrópu.

Belarus - Hvítrússland (Colgate James Bond wannabe-ið)
Nederland - Holland (Svarta gellan á björgunarpallinum)
Norge - Noregur (Gamla konan í snípstutta kjólnum)
Andorra - Andorra (Unglingarnir í rokkhljómsveitinni með falska söngvaranum)
Estonia - Eistland
Begium - Belgía (Diskó gæinn - Mamma var reyndar ekki sammála mér hér)
Turkey - Tyrkland (George Michael jr.)
Latvia - Litháen

Hlutlausar hvað Ísland varðar.

Man ekki alveg hvernig Eistland og Litháen voru en annað þeirra var stórsöngvararnir með pípuhattana og riddarakrossana.

Frekari komment á keppnina eftir úrslitin!

Enn er Kiddi að skila sínu

10. maí 2007 klukkan 08:43
Ég veit ekki hvar drengurinn grefur þetta upp en mér er sama!  Enn og aftur snilld!

Ómetanlegt!

Á heilanum

09. maí 2007 klukkan 12:02
Annars glymur þetta lag á mínu heimili í tíma og ótíma þessa daganna.

Uppá lofti, inní skáp
eru jólapakkar
titra öll af tilhlökkun
tindilfættir krakkar
komi jólakötturinn
kemst hann ekkí bæinn inn

Útí frið og ró
inní frost´og snjó
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.

Eins ótrúlegt og það er nú þá er það ekki Matti sem á heiðurinn að þessum skmmtilegu tónum.  Nei!  Það er hún Helga Sonja sem klárlega hefur erft límheila föður síns og fær hin allra "skemmtilegustu" og "mest viðeigandi" lög á heilann við hin ýmsu tækifæri.

Ég hinsvegar nota nýuppgötvaða lífsspeki til að lifa þetta af, lít á björtu hliðarnar og hugsa...."hún er þó ekki fölsk!"

DV - Uppgjörið

09. maí 2007 klukkan 11:56
Ég veit ég ætlaði ekki að blogga um þetta en ég get ekki orða bundist!

Eruði að grínast með DV í dag????????????????

Get ekki betur séð en þeir séu hættir í blaðamennskunni og séu nú áróðursrit fyrir stjórnarandstöðuna.  Ef þeir halda að þeir fái áskrift frá mér þá er það mikill miskilningur. Ég verð bara að setja spurningarmerki við fólk sem vinnur á svona blaði og tekur þátt í þessu bulli óhikað. 
Hvernig ætli starfsmannafundurinn hafi verið um daginn.  Nú skuluð þið öll saman fara og finna einhvern óhróður um ríkisstjórnina fyrir blaðið á miðvikudaginn og þar sem ekki er hægt að drulla yfir ríkisstjórnina í íþróttafréttum þá sleppum við þeim á miðvikudaginn og Benni og Dagur þið fáið því eins dags frí.

Nú er ég ekki á móti því að ríkisstjórnin sé gagnrýnd, alls ekki. Ég geri þó þá lágmarkskröfu að gagnrýnin sé málefnaleg og báðar hliðar málanna fái að njóta sín.

Það skortir hinsvegar algerlega í þessu blaði DV og því fer það beint þangað sem það á heima - Í ruslið!!!!!!!

Kiddi Erlu

07. maí 2007 klukkan 09:17
Ég erí því að stela færslum frá Kidda þessa dagana.  Fram færslan kemur frá honum og þessi líka.  Kanski erþað bara vegna þess að við styðjum bæði Arsenal sem okkur finnst þetta fyndið en það verður bara að segjast að þetta er snilld!!!!!!


AIG auglýsingin á United búningunum er ekki auglýsing fyrir AEG þvottavélar ef einhver lesblindur skyldi hafa haldið það!  Held að það sé ekki heldur símafyrirtæki þó þau séu mjög vinsæl hjá stóru klúbbunum.
Neibb!  Þessi mynd kemur loksins með skýringuna!!!!!!!!United auglýsingin

Djöfull gladdist ég með AC Milan!!!! Þeir björguðu vikunni hjá mér!!!!!

Fly on the wings of FRAM

04. maí 2007 klukkan 15:27
Já!  Þeir geta ekki mikið í fótbolta og eru ömurlegir söngvarar að því er virðist en engu að síður er þetta alger snilld!


http://www.fram.is/video/WingsofFram.wmv

Kíkið á þetta með opnum hug!  Backstreetboys my ass!!!!!

Þessi bloggari er snillingur!!!!

04. maí 2007 klukkan 08:56
http://www.hi.is/~jja/

Mæli með að honum sé bætt á rúntinn!


Annars eru nokkrir hlutir sem fara í pirrurnar á mér núna.
Ásgeir í tölvulistanum
Karlinn frá Avis sem vonar að fólk hafi farið á klósettið fyrir ummmmm flug, ehhh!
Baggalútur í " Í Bítið" kynningunum á morgnanna
Byggingarverktakinn á húsinu okkar í Tyrklandi
Fasteignastofan sem seldi okkur það

Annars er ég bara góð og er að hugsa um að tileinka mér nýjan hugsunarhátt. Ætla ekki að vera á móti neinu eða vona að eitthvað gerist ekki.  Frekar ætla ég að vera fylgjandi andstæðu/ing þess sem ég er á móti og vona að eitthvað andstætt við það sem ég vil ekki gerist.  Sem dæmi.....ekki vera á móti stríði heldur frekar fylgjandi friði, ekki hugsa um að losna við skuldir heldur hugsa frekar um að eiga peninga.

Þá verður maður alltaf glaður!!!!!!

THINK POSITIVE

Bara snilld

02. maí 2007 klukkan 09:33
Gaulverjarnir komu, sáu og sigruðu!!!

Eða næstum því!

Vorum í 3ja - 4ða sæti sem var mjög gott með 50-50 kynjahlutfall á meðan liðin fyrir ofan okkur voru mest með 80-20 og þá 20% konur.  Stefnum á sigur á næsta móti ef við fáum að vera með.

Mission 1 semsagt ekki alveg klárað en mission 2 var það hinsvegar!!!!

Djöfull var þetta gaman!!!

Hefðum samt klárlega átt að vinna bestu búningana!  Ég meina hver sem er getur saumað Indjánabúning!!!!!!!!!

Hér sjáiði mynd af Gaulverjunum í skrúðgöngunni.Gaulverjar